Lagasafn

Lög um vinnslu afla um borð í skipum

nr. 54/19928 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. [Lög þessi gilda um alla frekari vinnslu afla um borð í skipum en blóðgun, slægingu og flokkun. Vinnsla samkvæmt ákvæðum laga þessara er háð sérstöku leyfi Fiskistofu.] L. 154/2002, 1. gr.

2. gr.

2. gr. [Ráðherra skal setja reglugerð um nýtingarstuðla sem gildir um útreikning á nýtingu aflaheimilda einstakra skipa eða skipaflokka sem vinna afla um borð. Um nýtingu afla þeirra skipa gilda að öðru leyti ákvæði laga57 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.] Rg. 54/2003, sbr. 1153/2021 og 809/2022. L. 154/2002, 2. gr.

3. gr.

3. gr. [Um borð í [skipi sem leyfi hefur til vinnslu afla] skal vera aðstaða til móttöku, geymslu, vinnslu og frágangs aflans þannig að gæði framleiðslunnar verði tryggð. Ráðherra er heimilt að ákveða í reglugerð að um borð í [skipum sem leyfi hafa til vinnslu afla] skuli vera sjálfvirkur tækjabúnaður sem tryggi nákvæma vigtun og skráningu innvegins afla og afurða. Setja skal með reglugerð nánari ákvæði um nauðsynlegan búnað í þessu skyni og önnur atriði varðandi framkvæmd laganna.] L. 154/2002, 3. gr. Rg. 55/2003, sbr. 1035/2015 og 1153/2021. L. 58/1996, 2. gr.

4. gr.

4. gr. Það er skilyrði fyrir leyfisveitingu, sbr. 1. gr., að fjöldi í áhöfn sé nægilegur til að vinna afla á fullnægjandi hátt miðað við veiðar, vinnslu og gerð skips, að teknu tilliti til áskilins hvíldartíma og að fyrir hendi sé tilskilin aðstaða fyrir þá áhöfn og eftirlitsmenn, sbr. 6. gr. Í áhöfn skal vera maður með sérþekkingu á viðkomandi framleiðslu er hafa skal umsjón með allri vinnslu ásamt nauðsynlegu gæðaeftirliti. Skal með reglugerð kveða á um menntunarkröfur og starfssvið hans.

5. gr.

5. gr. Áður en [leyfi til vinnslu afla] er veitt skal liggja fyrir álit [Fiskistofu] á því hvort búnaður sé fullnægjandi með hliðsjón af ákvæðum laga þessara og reglugerða settra með stoð í þeim. Þá skal liggja fyrir mat [Samgöngustofu] á því hvort reglum um öryggisbúnað varðandi fiskvinnslu og aðbúnað áhafnar sé fullnægt. [Framangreint álit Fiskistofu byggist á úttekt Fiskistofu og skal greitt fyrir slíka úttekt samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu, sbr. 5. gr. laga36/1992, um Fiskistofu, með síðari breytingum.] L. 154/2002, 4. gr. L. 58/1996, 3. gr. L. 59/2013, 7. gr. L. 67/2015, 12. gr.

6. gr.

6. gr. [Eftirlitsmaður eða eftirlitsmenn skulu vera um borð í fiskiskipi, sem leyfi hefur til [vinnslu afla] um borð, fyrst eftir að leyfi er veitt, svo lengi sem Fiskistofa metur nauðsynlegt með hliðsjón af framkvæmd vinnslunnar. Sama gildir verði það mikil breyting í áhöfn [skips], útgerðarháttum þess eða búnaði að ástæða sé til að ætla að það hafi veruleg áhrif á vinnslu um borð í skipinu. Í annan tíma er veiðieftirliti Fiskistofu heimilt að setja eftirlitsmann eða eftirlitsmenn um borð í [skip sem vinnur afla um borð] eftir því sem ástæða er talin til. …] L. 154/2002, 5. gr. L. 34/2000, 11. gr. L. 58/1996, 4. gr.

7. gr.

7. gr. [7. gr. Brot gegn ákvæðum laga þessara eða reglum settum samkvæmt þeim varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. … [Fiskistofu er enn fremur heimilt vegna brota gegn ákvæðum laga þessara, reglna settra samkvæmt þeim og leyfisbréfa að svipta skip leyfi til vinnslu afla um borð.]] L. 88/2008, 233. gr. L. 154/2002, 6. gr. L. 58/1996, 5. gr.

8. gr.

8. gr. [8. gr.] Lög þessi öðlast þegar gildi. L. 58/1996, 5. gr. Ákvæði til bráðabirgða. … L. 58/1996, 6. gr.