Lagasafn

Lög um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga

nr. 84/20235 greinar

Texti laganna

1. gr.…

1. gr. … Greinin féll úr gildi 1. jan. 2026 skv. 1. mgr. 5. gr.

2. gr.…

2. gr. … Greinin féll úr gildi 1. jan. 2026 skv. 1. mgr. 5. gr.

3. gr.…

3. gr. … Greinin féll úr gildi 1. jan. 2026 skv. 1. mgr. 5. gr.

4. gr.Forvarnagjald.

4. gr. Forvarnagjald. Leggja skal árlegt gjald á allar húseignir sem nemur 0,08‰ af brunabótamati samkvæmt lögum um brunatryggingar. Tekjur af gjaldinu renna í ríkissjóð. Vátryggingafélög innheimta gjaldið með iðgjöldum skv. 3. mgr. 11. gr. laga um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, nr. 55/1992, og gilda 3. og 5. mgr. 11. gr. þeirra laga um innheimtu þess. Álagning gjaldsins skal ekki hafa áhrif til hækkunar á innheimtuþóknun til vátryggingafélaga. Ráðherra sem fer með ríkisfjármál getur kveðið nánar á um framkvæmd þessarar greinar í reglugerð, þar á meðal um innheimtu gjalds. Rg. 1663/2024.

5. gr.Gildistaka o.fl.

5. gr. Gildistaka o.fl. Lög þessi öðlast þegar gildi, utan 4. gr. sem öðlast gildi 1. janúar 2024, og falla brott 31. desember 2026. Þó skulu ákvæði 1.–3. gr. og 3. mgr. þessarar greinar falla úr gildi [1. janúar 2026]. Þrátt fyrir 2. mgr. 8. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað binda lög þessi alla þegar við birtingu. … L. 135/2024, 2. gr. Málsgreinin féll úr gildi 1. jan. 2026 skv. 1. mgr.