1. gr.
Tilgangur laga þessara er að stuðla að verndun Breiðafjarðar, einkum landslags, jarðmyndana, lífríkis og menningarminja.
2. gr.
2. gr.
Ákvæði laganna taka til allra eyja, hólma og skerja á Breiðafirði ásamt fjörum í innri hluta fjarðarins sem markast af línu dreginni frá Ytranesi á Barðaströnd við fjörðinn norðanverðan í Hagadrápssker um Oddbjarnarsker, Stagley og Höskuldsey í Vallabjarg að sunnanverðu.
3. gr.
3. gr.
[Ráðherra] fer með stjórn mála er varða vernd Breiðafjarðar samkvæmt lögum þessum. Um vernd menningarsögulegra minja fer samkvæmt þjóðminjalögum.
L. 126/2011, 210. gr.
4. gr.
4. gr.
Breiðafjarðarnefnd er [ráðherra] til ráðgjafar um allt það er lýtur að framkvæmd laga þessara. Í nefndinni eiga sæti sjö menn, sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn sem hér segir: [Sveitarfélög sem liggja að Breiðafirði tilnefna fjóra fulltrúa á þann hátt sem ráðherra ákveður í reglugerð], Náttúrufræðistofnun … og náttúrustofur á Vesturlandi og Vestfjörðum einn sameiginlega og einn er tilnefndur af [Minjastofnun Íslands]. [Ráðherra] skipar einn mann í nefndina án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Nefndin skal í samráði við sveitarfélögin láta gera verndaráætlun þar sem fram kemur hvernig ná skuli þeim markmiðum sem sett eru með vernd svæðisins. Áætlun þessi skal send ráðherra til staðfestingar.
Í starfi sínu skal nefndin gæta samráðs við sveitarstjórnir, náttúruverndarnefndir, [Náttúruverndarstofnun], minjaverði og yfirvöld þjóðminjavörslu.
Nefndin skal árlega gefa ráðherra skýrslu um störf sín.
L. 126/2011, 210. gr. L. 138/2011, 134. gr. L. 54/2024, 12. gr. L. 111/2024, 6. gr.
5. gr.
5. gr.
[Ráðherra] setur, að fengnum tillögum Breiðafjarðarnefndar og umsögnum viðkomandi sveitarstjórna um þær, reglugerð þar sem kveðið skal á um verndaraðgerðir á grundvelli laganna, varnir gegn hvers konar mengun og aðgang ferðamanna að tilteknum stöðum á svæðinu sem viðkvæmir eru vegna náttúrufars.
[Ráðherra setur, að fengnum tillögum Breiðafjarðarnefndar og að fenginni umsögn Minjastofnunar Íslands og húsafriðunarnefndar eftir því sem við á, reglugerð um vernd menningarsögulegra minja á svæðinu, þar á meðal byggðarheildar gamalla húsa í Flatey og vernd sjóminja.]
L. 126/2011, 210. gr. L. 111/2024, 6. gr.
6. gr.
6. gr.
Við gerð skipulagsáætlana á því svæði sem um getur í 2. gr. skulu sveitarfélög leita umsagnar Breiðafjarðarnefndar. Í skipulagsáætlunum ber að taka tillit til verndaráætlunar Breiðafjarðarnefndar.
Þar sem ekki eru fyrir hendi samþykktar skipulagsáætlanir á því landsvæði sem um getur í 2. gr. er hvers konar mannvirkjagerð óheimil, svo og jarðrask, nema að fengnu [leyfi [Náttúruverndarstofnunar].]
Framkvæmdir, sem nauðsynlegar og eðlilegar teljast til búskapar á lögbýlum, eru leyfilegar nema spjöllum valdi á menningarsögulegum minjum, náttúruminjum eða lífríki að [mati [Náttúruverndarstofnunar]] eða [Minjastofnunar Íslands] þegar um fornleifar er að ræða.
[Ákvarðanir sem [Náttúruverndarstofnun] tekur og varða veitingu, endurskoðun eða afturköllun leyfis samkvæmt þessari grein sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.]
L. 111/2024, 6. gr. L. 164/2002, 32. gr. L. 131/2011, 22. gr.
7. gr.
7. gr.
Með rannsóknum á vegum Náttúrufræðistofnunar …, náttúrustofu Vestfjarða og náttúrustofu á Vesturlandi, sbr. lög60/1992, skal markvisst unnið að því að auka þekkingu á náttúru Breiðafjarðarsvæðisins til að tryggja sem best verndun þess. Breiðafjarðarnefnd skal í samráði við þessa aðila láta gera áætlun um æskilegar rannsóknir á svæðinu og endurskoða hana reglulega.
Ráðherra getur með reglugerð heimilað framangreindum stofnunum að standa sameiginlega að starfrækslu náttúrurannsóknastöðvar á svæðinu á grundvelli laga60/1992. Rannsóknastöðin getur leitað eftir fjárstuðningi innlendra og erlendra aðila við starfsemi sína og einstök verkefni.
L. 54/2024, 12. gr.
8. gr.
8. gr.
Kostnaður við framkvæmd laga þessara greiðist úr ríkissjóði eftir því sem fé er veitt til í fjárlögum.
9. gr.
9. gr.
Brot gegn lögum þessum og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim varða sektum [eða fangelsi allt að 2 árum]. Sektir renna í ríkissjóð.
Beita má dagsektum er renna í ríkissjóð, allt að 50 þúsund krónum, til að knýja menn til framkvæmda á ráðstöfunum sem þeim er skylt að hlutast til um samkvæmt lögum þessum og reglugerðum eða láta af atferli sem er ólögmætt.
…
L. 82/1998, 222. gr. L. 88/2008, 233. gr.