Lagasafn

Lög um þjóðsöng Íslendinga

nr. 7/19836 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Þjóðsöngur Íslendinga er „Ó Guð vors lands“, ljóð eftir Matthías Jochumsson og lag Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.

2. gr.

2. gr. Þjóðsöngurinn er eign íslensku þjóðarinnar, og fer [ráðuneytið] með umráð yfir útgáfurétti á honum. L. 126/2011, 96. gr.

3. gr.

3. gr. Þjóðsönginn skal ekki flytja eða birta í annarri mynd en hinni upprunalegu gerð. Ekki er heimilt að nota þjóðsönginn á nokkurn hátt í viðskipta- eða auglýsingaskyni.

4. gr.

4. gr. Nú rís ágreiningur um rétta notkun þjóðsöngsins og sker þá [ráðherra] úr. L. 126/2011, 96. gr.

5. gr.

5. gr. Með forsetaúrskurði skal setja nánari ákvæði um notkun þjóðsöngsins, ef þörf þykir.

6. gr.

6. gr. Brot gegn ákvæðum laga þessara varða sektum eða [fangelsi allt að 2 árum]. … L. 82/1998, 171. gr. L. 88/2008, 233. gr.