Lagasafn

Lög um þátttöku Íslands í stofnun gjaldeyrissjóðs og alþjóðabanka samkvæmt tillögum Bretton Woods fundarins og um lántöku í því skyni

nr. 105/19455 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Ríkisstjórn Íslands er heimilt fyrir hönd hins íslenska lýðveldis að gerast aðili að stofnun gjaldeyrissjóðs og alþjóðabanka, samkvæmt tillögum, sem samþykktar voru í júlí 1944 á fundi hinna sameinuðu þjóða og þeirra þjóða, sem með þeim vinna (United and Associated Nations) í Bretton Woods í Bandaríkjunum.

2. gr.

2. gr. … L. 103/1999, 1. gr.

3. gr.

3. gr. [Til þess að standa straum af framlögum ríkisins til gjaldeyrissjóðsins og alþjóðabankans heimilast ríkisstjórninni að taka innanríkislán, er jafngildi allt að 3,5 milljónum dollara.] L. 30/1959, 1. gr.

4. gr.

4. gr. … L. 30/1960, 14. gr.

5. gr.

5. gr. Skylt er öllum þeim, sem skulda fé í erlendum gjaldeyri, að gefa Hagstofu Íslands skýrslu um skuldir sínar ársfjórðungslega í því formi, er hún fyrirskipar.