Lagasafn

Lög um sóknargjöld o.fl.

nr. 91/19876 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. [Þjóðkirkjusöfnuðir og skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög samkvæmt lögum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög skulu eiga ákveðna hlutdeild í tekjuskatti álögðum samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt eftir því sem lög þessi ákveða.] L. 6/2013, 14. gr.

2. gr.

2. gr. [Ríkissjóður skal skila 15. hvers mánaðar, af óskiptum tekjuskatti, fjárhæð er rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga [og lífsskoðunarfélaga].] Fjárhæð þessi reiknast þannig að fyrir hvern einstakling, sem er 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári, greiðist ákveðin upphæð sem ákvarðast þannig: 1. [Á árinu 1997 skal gjaldið vera 400,24 kr. á einstakling á mánuði.] 2. … 3. Á árinu [1998] og síðar ákvarðast gjaldið af endanlegri ákvörðun gjaldsins frá fyrra ári, að viðbættri hækkun er samsvarar þeirri hækkun er kann að verða á meðaltekjuskattsstofni einstaklinga á öllu landinu milli næstliðinna tekjuára á undan gjaldári. Nú verða gerðar breytingar á útreikningi tekjuskattsstofns og skal þá taka tillit til þess við ákvörðun gjaldsins hverju sinni. Hækkun á gjaldi samkvæmt þessari grein skal ákvarðast af [ráðherra] í samræmi við upplýsingar frá ríkisskattstjóra … eigi síðar en 1. ágúst ár hvert. Þar til ákvörðun þessi liggur fyrir skal ráðherra ákveða uppígreiðslu gjaldsins fyrir mánuðina janúar til júlí ár hvert á grundvelli spár um tekjuþróun tveggja næstliðinna ára. L. 6/2013, 14. gr. L. 70/2009, 23. gr. L. 124/1997, 1. gr. L. 126/2011, 121. gr. L. 51/2002, 2. gr.

3. gr.

3. gr. [Gjald skv. 2. gr. skiptist þannig: 1. Vegna einstaklings, sem skráður er í þjóðkirkjuna, greiðist til þess safnaðar sem hann tilheyrir og miðast við 1. desember næst á undan gjaldári. 2. Vegna einstaklings, sem tilheyrir skráðu trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi, samkvæmt lögum108/1999, greiðist gjaldið til hlutaðeigandi trúfélags eða lífsskoðunarfélags. 3. Vegna einstaklinga, sem eru í þjóðkirkjunni og eru óstaðsettir á landinu samkvæmt þjóðskrá, greiðist gjaldið til [þjóðkirkjunnar]. Skráning í trúfélag eða lífsskoðunarfélag miðast við 1. desember næst á undan gjaldári.] L. 95/2020, 5. gr. L. 6/2013, 14. gr.

4. gr.

4. gr. [Fjársýsla ríkisins] annast skiptingu gjaldsins skv. 3. gr. L. 95/2002, 7. gr. II. kafli. … L. 95/2020, 6. gr. III. kafli. … L. 95/2020, 7. gr. IV. kafli. Stjórnvaldsreglur, gildistaka og brottfallin lög.

9. gr.

9. gr. [Ráðherra] setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laganna að fengnum tillögum biskups og kirkjuráðs og að höfðu samráði við [ráðuneyti er fer með tekjuöflun ríkisins]. L. 162/2010, 114. gr. Rg. 206/1991, sbr. 81/1999, 1130/2005 og 27/2010. Rg. 865/2001, sbr. 1129/2005 og 150/2010. L. 126/2011, 121. gr.

10. gr.

10. gr. Lög þessi öðlast gildi hinn 1. janúar 1988. … [Ákvæði til bráðabirgða. I. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga124/1997, skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða, skráðra trúfélaga og Háskóla Íslands vera 566 kr. á mánuði árið 2002 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 148/2001, 7. gr. [II. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna, með síðari breytingum, skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða, skráðra trúfélaga og Háskóla Íslands vera 855 kr. á mánuði árið 2009 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 173/2008, 1. gr. [III. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna, með síðari breytingum, skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 811 kr. á mánuði frá gildistöku laga þessara út árið 2009 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári. Fyrir árið 2010 skal gjaldið vera 767 kr. á mánuði fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 70/2009, brbákv. VI. [IV. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna, með síðari breytingum, skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 698 kr. á mánuði árið 2011 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 164/2010, 25. gr. [V. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna, með síðari breytingum, skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 701 kr. á mánuði árið 2012 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 164/2011, 30. gr. [VI. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna, með síðari breytingum, skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 728 kr. á mánuði árið 2013 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 146/2012, 32. gr. [VII. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna, með síðari breytingum, skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða, skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga vera 750 kr. á mánuði árið 2014 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 140/2013, 32. gr. [VIII. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna, með síðari breytingum, skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 824 kr. á mánuði árið 2015 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 125/2014, 8. gr. [IX. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna, með síðari breytingum, skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 898 kr. á mánuði árið 2016 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 125/2015, 53. gr. [X. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna, með síðari breytingum, skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 920 kr. á mánuði árið 2017 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 126/2016, 29. gr. [XI. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna, með síðari breytingum, skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 931 kr. á mánuði árið 2018 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 96/2017, 37. gr. [XII. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 925 kr. á mánuði árið 2019 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 138/2018, 22. gr. [XIII. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laganna skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 975 kr. á mánuði árið 2020 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 135/2019, 20. gr. [XIV. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 1.080 kr. á mánuði árið 2021 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 133/2020, 26. gr. [XV. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 1.107 kr. á mánuði árið 2022 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 131/2021, 24. gr. [XVI. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga vera 1.192 kr. á mánuði árið 2023 [og árið 2024] fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 100/2023, 20. gr. L. 129/2022, 22. gr. [XVII. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða, skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga vera 1.221 kr. á mánuði árið 2025 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 127/2024, 21. gr. [XVIII. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. skal gjald sem rennur til þjóðkirkjusafnaða, skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga vera 1.221 kr. á mánuði árið 2026 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári.] L. 99/2025, 23. gr.