Lög um sameiningu Borgarfjarðarhrepps og Loðmundarfjarðarhrepps í Norður-Múlasýslu í einn hrepp
nr. 40/19724 greinar
Texti laganna
1. gr.
1. gr.
Borgarfjarðarhreppur og Loðmundarfjarðarhreppur í Norður-Múlasýslu skulu vera einn hreppur, sem heitir Borgarfjarðarhreppur.
2. gr.
2. gr.
Kostnaður við fjallskil á eyðilöndum í Loðmundarfirði skiptist þannig, að eigendur eyðijarða bera /4, sveitarfélög þau, er fjárvon eiga í löndum þessum, sameiginlega /2 og ríkið /4. Kostnaður eyðijarðaeigenda skiptist á milli þeirra í réttu hlutfalli við landverð eyðijarðanna samkvæmt gildandi fasteignamati. Sá hluti fjallskilakostnaðarins, sem kemur í hlut sveitarfélaganna samkvæmt grein þessari, skiptist á milli þeirra í réttu hlutfalli við tölu þess fjár, sem kemur af fjalli og tilheyrir íbúum hvors þeirra fyrir sig.
…
Sýslumaður Norður-Múlasýslu annast innheimtu á framlögum til greiðslu fjallskilakostnaðarins.
L. 73/1996, 33. gr.
3. gr.
3. gr.
Kostnaður við eyðingu refa og minka í Loðmundarfirði samkvæmt lögum52 5. júní 1957 endurgreiðist Borgarfjarðarhreppi næstu fimm árin úr ríkissjóði, enda verði framkvæmd við eyðingu refa og minka hagað í samráði við veiðistjóra ríkisins.