Lagasafn

Lög um refsiábyrgð lögaðila vegna mútugreiðslna og hryðjuverka

nr. 144/19984 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. [Nú er í starfsemi lögaðila framið brot gegn 109. gr. eða 1. mgr. 264. gr. a almennra hegningarlaga og er þá heimilt að gera lögaðilanum fésekt. Nú er í starfsemi lögaðila framið brot gegn 264. gr. almennra hegningarlaga og frumbrotið, sem ávinningur stafar af, varðar 109. gr. eða 1. mgr. 264. gr. a almennra hegningarlaga og er þá sömuleiðis heimilt að gera lögaðilanum fésekt.] L. 125/2003, 5. gr.

2. gr.

2. gr. [2. gr. Nú er í starfsemi lögaðila framið brot gegn 100. gr. a – 100. gr. c almennra hegningarlaga og er þá heimilt að gera lögaðilanum fésekt.] L. 99/2002, 3. gr.

3. gr.

3. gr. [3. gr. Um tilhögun refsiábyrgðar samkvæmt lögunum fer eftir II. kafla A almennra hegningarlaga.] L. 125/2003, 6. gr.

4. gr.

4. gr. [4. gr.] Lög þessi öðlast þegar gildi. L. 125/2003, 6. gr.