1. gr.
Stofna skal norrænan þróunarsjóð samkvæmt samningi milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um stofnun norræns þróunarsjóðs sem undirritaður var í Stokkhólmi 3. nóvember 1988.
2. gr.
2. gr.
Sjóðurinn skal undanþeginn ákvæðum laga63/1979, um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála, svo og annarra laga er setja kunna hömlur á greiðslur í erlendum gjaldeyri eða gjaldeyrisviðskipti, að svo miklu leyti sem slík ákvæði hindra eða torvelda starfsemi sjóðsins eða efndir skuldbindinga hans.
Nú l. 87/1992.
3. gr.
3. gr.
Sjóðurinn skal vera undanþeginn aðstöðugjaldi, landsútsvari [og tekjuskatti], svo og öðrum gjöldum sem lögð kunna að vera á tekjur, eignir eða veltu til ríkis eða sveitarfélaga.
L. 129/2004, 80. gr.
4. gr.
4. gr.
Lánssamningar, sem sjóðurinn er aðili að, skulu vera undanþegnir stimpilgjöldum og öðrum gjöldum hins opinbera.
5. gr.
5. gr.
Lög þessi öðlast gildi um leið og samningur um norrænan þróunarsjóð.