1. gr.
[[Ráðherra] fer með lántökur ríkissjóðs og ríkisstofnana innan lands og utan, útgáfu og sölu ríkisskuldabréfa á innlendum markaði og aðra skuldaumsýslu fyrir ríkissjóð, svo og endurlán lánsfjár, ríkisábyrgðir og Ríkisábyrgðasjóð.]
L. 126/2011, 139. gr. L. 138/2007, 1. gr.
2. gr.
2. gr.
[Lánasýsla ríkisins skal stefna] að eftirfarandi meginmarkmiðum:
1. Halda erlendum og innlendum vaxta- og fjármagnskostnaði ríkisins í lágmarki.
2. Dreifa gengis-, vaxta- og verðlagsáhættu vegna skulda ríkisins á sem hagkvæmastan hátt.
3. Draga úr áhættu ríkissjóðs vegna ábyrgða og endurlána.
4. Efla markað fyrir ríkisverðbréf á innlendum fjármagnsmarkaði með kynningu og þjónustu.
5. Efla lánstraust íslenska ríkisins á erlendum lánsfjármörkuðum og bæta þannig lánskjör þjóðarinnar erlendis.
L. 138/2007, 2. gr.
3. gr.
3. gr.
[3. gr.]
[Ráðherra] semur fyrir hönd ríkissjóðs um lán, endurlánar fé og veitir ábyrgðir … innan heimilda sem Alþingi veitir hverju sinni.
[Ráðherra] er heimilt í nafni ríkissjóðs að taka lán og endurlána fé í stað sjálfskuldarábyrgðar ríkissjóðs skv. 1. mgr., að hluta eða öllu leyti, enda sé það fyrirkomulag tryggara fyrir ríkissjóð.
L. 138/2007, 3. gr. L. 126/2011, 139. gr. L. 138/2007, 4. gr.
4. gr.
4. gr.
[4. gr.]
[Ráðherra] fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að endurfjármagna innlendar og erlendar skuldir fyrir gjalddaga þegar hagstæðari kjör bjóðast. Einnig er [ráðherra] heimilt að taka fyrir hönd ríkissjóðs erlend skammtímalán til endurgreiðslu áður tekinna erlendra skammtímalána eða breyta sömu skammtímaskuldum í föst lán.
[Ráðherra] er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að selja ríkisvíxla á innlendum markaði til endurgreiðslu áður útgefinna ríkisvíxla og til að bæta stöðu ríkissjóðs á aðalviðskiptareikningi hans í Seðlabankanum.
Enn fremur er [ráðherra] fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að breyta gjaldmiðlum og/eða vaxtakjörum á erlendum lánum með sérstökum samningum, enda felist ekki nýjar lántökur í slíkum breytingum.
[Ráðherra] skal árlega upplýsa Alþingi um notkun þessara heimilda.
Heimilt er að kveða nánar á um ákvæði þessarar greinar í reglugerð.
L. 138/2007, 3. gr. L. 126/2011, 139. gr.
5. gr.
5. gr.
[5. gr.]
[Ráðherra] skal hafa eftirlit með lántökum aðila sem ríkisábyrgðar njóta á skuldbindingum sínum og vera ráðgefandi um skuldstýringu þeirra.
Skylt er þeim aðilum, er hyggjast taka lán erlendis og ríkisábyrgðar njóta á erlendum skuldbindingum, að kynna þau áform sín fyrir [ráðherra] og leita eftir fyrir fram samþykki á þeim kjörum og skilmálum sem þeir hyggjast semja um.
L. 138/2007, 3. gr. L. 126/2011, 139. gr.
6. gr.
6. gr.
[6. gr.]
Heimilt er að [fela þar til bærum opinberum aðila, einum eða fleiri, að annast] framkvæmd … lánamála, ríkisábyrgða- og endurlánamála, svo og önnur verkefni sem [[ráðherra] fer með samkvæmt lögum þessum] eftir því sem hagkvæmt þykir.
L. 138/2007, 3. gr. L. 91/2019, 133. gr. L. 138/2007, 7. gr. L. 126/2011, 139. gr.
7. gr.
7. gr.
[7. gr.]
Nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara … má setja með reglugerð.
L. 138/2007, 3. gr. L. 138/2007, 8. gr. Rg. 237/1998.
8. gr.
8. gr.
[8. gr.]
Lög þessi öðlast þegar gildi. …
L. 138/2007, 3. gr.
[Ákvæði til bráðabirgða.
[Ráðherra] tekur við almennum réttindum og skyldum Lánasýslu ríkisins og við samningum við þriðja aðila eftir því sem við getur átt samkvæmt ákvæðum laga þessara.]
L. 126/2011, 139. gr. L. 138/2007, 9. gr.