Lagasafn

Lög um Heyrnar- og talmeinastöð

nr. 42/20079 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Starfrækja skal Heyrnar- og talmeinastöð undir yfirstjórn [ráðherra]. L. 126/2011, 453. gr.

2. gr.

2. gr. Heyrnar- og talmeinastöð annast þjónustu við heyrnarlausa, heyrnarskerta og þá sem eru með heyrnar- og talmein. Hlutverk Heyrnar- og talmeinastöðvar er m.a.: 1. Að sjá um heyrnarmælingar, greiningu og meðferð á heyrnar- og talmeinum. 2. Að veita faglega ráðgjöf og annast þjálfun og endurhæfingu heyrnarlausra, heyrnarskertra og þeirra sem eru með heyrnar- og talmein. 3. Að sinna forvörnum á starfssviði sínu í samvinnu við aðrar stofnanir eftir því sem við á. 4. Að útvega hjálpartæki fyrir heyrnarskerta, heyrnarlausa og þá sem eru með heyrnar- og talmein og veita fræðslu og þjálfun í notkun þeirra. Stofnunin skal enn fremur sjá um viðhald og uppsetningu hjálpartækjanna. 5. Að stunda rannsóknir og sinna fræðslu á starfssviði sínu. Stofnunin skal safna upplýsingum um alla þá sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða eru með heyrnar- og talmein og öðrum tölfræðilegum upplýsingum sem nýtast við rannsóknar- og þróunarstörf. Um söfnun upplýsinga skal fara samkvæmt lögum um persónuvernd og [vinnslu] persónuupplýsinga og reglum settum með stoð í þeim lögum og lögum um landlækni eftir því sem við á. L. 90/2018, 54. gr.

3. gr.

3. gr. Ráðherra skipar forstjóra Heyrnar- og talmeinastöðvar til fimm ára í samræmi við ákvæði laga um heilbrigðisþjónustu. Forstjóri ræður aðra starfsmenn stofnunarinnar og skulu þeir hafa viðeigandi menntun á starfssviði stofnunarinnar. Heimilt er að kveða nánar á um menntunarskilyrði starfsmanna í reglugerð.

4. gr.

4. gr. Við Heyrnar- og talmeinastöð skal vera fimm manna fagráð sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Fagráðið skal skipað þremur mönnum með menntun eða sérþekkingu á verksviði stofnunarinnar og tveimur fulltrúum notenda þjónustunnar. Fagráðið skal vera forstjóra til ráðuneytis um fagleg málefni og stefnumótun.

5. gr.

5. gr. Ráðherra skal setja reglugerð um þátttöku ríkisins í kostnaði við hjálpartæki vegna heyrnar- og talmeina að höfðu samráði við Heyrnar- og talmeinastöð. Rg. 968/2015, sbr. 614/2022. Rg. 969/2015, sbr. 871/2017, 615/2022 og 969/2024.

6. gr.

6. gr. Sjúkratryggður einstaklingur samkvæmt lögum um [sjúkratryggingar] skal greiða gjald fyrir þjónustu Heyrnar- og talmeinastöðvar sem hér segir: 1. fyrir viðgerð á hjálpartækjum, 2. fyrir sérfræðilæknisþjónustu og rannsóknir samkvæmt ákvæðum laga um [sjúkratryggingar] og reglum settum með stoð í þeim lögum, 3. fyrir greiningu á máltruflun, komu vegna endurmats hjá talmeinafræðingi og aðrar talrannsóknir. Fyrir heyrnarrannsókn á vinnustað skal greiða gjald sem standa skal undir kostnaði stofnunarinnar við rannsóknina. Ráðherra setur reglugerð um gjaldtöku samkvæmt grein þessari að höfðu samráði við forstjóra og fagráð Heyrnar- og talmeinastöðvar. Skal gjaldskráin taka mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna. Heyrnar- og talmeinastöð innheimtir gjöld þessi. Þeir sem ekki eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um [sjúkratryggingar] skulu greiða gjald sem nemur kostnaði við veitta þjónustu í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur, nema í gildi sé samningur um þjónustuna við það ríki sem þeir koma frá. L. 112/2008, 66. gr. Rg. 968/2015, sbr. 614/2022.

7. gr.

7. gr. Ráðherra er heimilt, í samræmi við ákvæði laga um heilbrigðisþjónustu, að fela öðrum aðilum með samningi að annast þá þjónustu sem greinir í 2. gr. eða hluta þeirrar þjónustu.

8. gr.

8. gr. Ráðherra er heimilt í reglugerð að kveða nánar á um framkvæmd laga þessara. Rg. 968/2015, sbr. 614/2022. Rg. 1495/2025.

9. gr.

9. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. september 2007.