1. gr.
1. gr.
[Vegna fyrirhugaðrar stofnunar og reksturs atvinnustarfsemi á iðnaðarsvæði í landi Bakka í Norðurþingi, þar sem gert er ráð fyrir verulegri fjárfestingu sem hafi jákvæð þjóðhagsleg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif á Húsavík og nágrenni þess, og í þeim tilgangi að byggja upp nauðsynlega innviði vegna iðnaðarsvæðisins, er:
a. ráðherra, f.h. ríkissjóðs, heimilt, að fengnum heimildum í fjárlögum, að semja við Vegagerðina um gerð vegtengingar milli Húsavíkurhafnar og iðnaðarsvæðisins á Bakka …,
b. ráðherra sem fer með lánsfjármál ríkissjóðs heimilt, f.h. ríkissjóðs, að fengnum heimildum í fjárlögum, að semja við hafnarsjóð Húsavíkurhafnar um víkjandi lán til hafnarframkvæmda fyrir allt að 819 millj. kr., miðað við verðlag í lok árs 2012.]
Gera skal grein fyrir fjárveitingum og lánsfjárhæð hvers árs í frumvarpi til fjárlaga fyrir það ár.
Ekki er heimilt að hefja vinnu við framkvæmdir vegna uppbyggingarinnar nema tryggt sé með samningi við félag að hafin verði atvinnustarfsemi orkufreks iðnaðar í landi Bakka.
L. 64/2015, 1. gr. L. 131/2014, 1. gr.