Lagasafn

Lög um heimild til handa ráðherra f.h. ríkissjóðs til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði

nr. 48/20123 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Í þeim tilgangi að tengja Eyjafjörð og Fnjóskadal með jarðgöngum um Vaðlaheiði er ráðherra f.h. ríkissjóðs heimilt að undirrita lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf. um lán til gangaframkvæmda fyrir allt að [14.400 m.kr.], miðað við verðlag í lok árs [2016]. Félagið sjálft, eignir þess og tekjustreymi skulu vera fullnægjandi tryggingar fyrir láni skv. 1. mgr. Lánsfjárhæð skal greiðast félaginu í samræmi við framvindu verks og í samræmi við lánasamning skv. 1. mgr. Gera skal grein fyrir lánsfjárhæð hvers árs í frumvarpi til fjárlaga fyrir það ár. L. 62/2017, 1. gr.

2. gr.

2. gr. Lög nr. 121/1997, um ríkisábyrgðir, skulu gilda varðandi lán samkvæmt lögum þessum að undanskildum ákvæðum 3. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 3. gr. laganna.

3. gr.

3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.