1. gr.
1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt frá 6. mars 1948, um alþjóðasiglingamálastofnun (IMCO), með þeim fyrirvara, að Ísland muni taka staðfestingu sína til athugunar á ný, ef síðar yrði ákveðið, að siglingamálastofnunin (IMCO) skyldi einnig fjalla um mál, sem eru algerlega fjármálalegs eða viðskiptalegs eðlis.
Samtímis sé því lýst yfir, að af Íslands hálfu sé áhersla lögð á raunhæft gildi 59. gr. samþykktarinnar, varðandi uppsögn á þátttöku.
Samþykkt þessi er prentuð á íslensku og ensku sem fylgiskjal með lögum þessum.
Sjá Stjtíð. A 1960, bls. 186.