Lagasafn

Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um gagnkvæma stjórnsýsluaðstoð í skattamálum

nr. 74/19963 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. [Ríkisstjórninni er heimilt að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um gagnkvæma stjórnsýsluaðstoð í skattamálum sem gerður var í Strassborg 25. janúar 1988 og bókun um breytingu á honum sem gerð var í París 27. maí 2010. Samningurinn og bókunin eru prentuð sem fylgiskjal með lögum þessum.] Sjá Stjtíð. A 1996, bls. 226–238, og Stjtíð. A 135/2011. L. 135/2011, 1. gr.

2. gr.

2. gr. [Þegar samningurinn og bókunin er um ræðir í 1. gr. hafa öðlast gildi að því er Ísland varðar skulu ákvæði þeirra hafa lagagildi hér á landi.] L. 135/2011, 2. gr.

3. gr.

3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.