1. gr.
1. gr.
Heimilt skal [Sambandi íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga] að reka vöruhappdrætti með eftirfarandi skilyrðum:
a. [Hlutatalan má ekki fara fram úr [80.000]. Draga skal í 12 flokkum á ári hverju og skal dráttur fara fram fyrir einn flokk í mánuði hverjum, í fyrsta sinn í janúarmánuði.]
b. Hlutina má selja í heilu og hálfu lagi. Iðgjöld fyrir hvern hlut ákveður [ráðherra] að fengnum tillögum frá stjórn [Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga].
c. Vinningar skulu vera að verðmæti samtals að minnsta kosti 50% af iðgjöldunum samantöldum í öllum tólf flokkum.
d. [Dráttur skal fara fram í Reykjavík undir eftirliti nefndar, sem [ráðherra] skipar til þess. Nefndin leggur fullnaðarúrskurð á allan ágreining um lögmæti eða gildi dráttar, bæði meðan dráttur fer fram og eftir að honum er lokið. Kostnað af þessu ber happdrættið.]
L. 94/1999, 1. gr. L. 167/2011, 1. gr. L. 115/1984, 1. gr. L. 126/2011, 29. gr. L. 162/2010, 93. gr. L. 52/1976, 1. gr.