Lagasafn

Lög um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna

nr. 16/19735 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Heimilt skal Dvalarheimili aldraðra sjómanna að stofna happdrætti um bifreiðar, bifhjól, báta, búnaðarvélar, íbúðarhús og einstakar íbúðir, húsbúnað, hljóðfæri, búpening, flugvélar og farmiða til ferðalaga. Verð happdrættismiða skal ákveðið af ráðherra, að fengnum tillögum frá stjórn Dvalarheimilis aldraðra sjómanna.

2. gr.

2. gr. [Dráttur skal fara fram í Reykjavík undir eftirliti nefndar, sem [ráðherra] skipar til þess. Nefndin leggur fullnaðarúrskurð á allan ágreining um lögmæti eða gildi dráttar, bæði meðan dráttur fer fram og eftir að honum er lokið. Kostnað af þessu ber happdrættið. Dregið skal mánaðarlega.] L. 126/2011, 59. gr. L. 53/1976, 1. gr.

3. gr.

3. gr. [[Heimild þessi gildir til 1. janúar 2034.] Ágóði happdrættisins skal renna til byggingarframkvæmda fyrir aldraða á vegum Sjómannadagssamtakanna í Reykjavík og Hafnarfirði. Heimilt er stjórn samtakanna, sem sér um stjórn og daglegan rekstur happdrættisins, að veita styrk eða lán til annarra bygginga um land allt í þágu aldraðra, svo sem verndaðra þjónustuíbúða, umönnunar- og hjúkrunarheimila og þjónustumiðstöðva fyrir aldraða.] L. 126/2015, 3. gr. L. 24/1987, 1. gr.

4. gr.

4. gr. Vinningar í happdrætti þessu skulu undanþegnir hvers konar opinberum gjöldum … L. 129/2004, 40. gr.

5. gr.

5. gr. Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um starfsemi happdrættisins, þar á meðal um endurskoðun ársreikninga happdrættisins … Rg. 148/2000, sbr. 238/2000, 268/2001, 837/2001, 210/2003, 311/2004, 306/2006, 401/2011, 278/2013, 344/2015, 925/2018, 347/2019 og 367/2022. L. 24/1987, 2. gr.