1. gr.
Lög þessi gilda um íslenskan æðardún og gæðamat á honum.
2. gr.
2. gr.
Allur æðardúnn, hvort sem er til dreifingar á innanlandsmarkaði eða til útflutnings, skal metinn og veginn af lögskipuðum dúnmatsmönnum eftir fullhreinsun. Áður en að dreifingu á innanlandsmarkaði eða til útflutnings kemur skal liggja fyrir að æðardúnn standist gæðamat dúnmatsmanna með vottorði þeirra þar að lútandi.
3. gr.
3. gr.
[Ráðuneytið] gefur út leyfi til handa dúnmatsmönnum til starfa á þeim stöðum sem það telur þörf á að fengnum tillögum Bændasamtaka Íslands og Félags íslenskra stórkaupmanna. Dúnmatsmenn skulu undirrita eiðstaf áður en þeir taka til starfa. Kostnaður af störfum þeirra greiðist af matsbeiðanda í samræmi við gjaldskrá sem ráðuneytið staðfestir.
Nánar er kveðið á um framkvæmd laganna, starfsskyldur og hæfniskröfur dúnmatsmanna í reglugerð.
L. 126/2011, 403. gr. Rg. 350/2011.
4. gr.
4. gr.
Brot á lögum þessum varða sektum …
L. 88/2008, 233. gr.
5. gr.
5. gr.
Lög þessi taka gildi þegar í stað. …