Lagasafn

Lög um friðhelgi og forréttindi alþjóðastofnana

nr. 98/19923 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Alþjóðastofnanir skulu njóta þeirrar friðhelgi og þeirra forréttinda hér á landi sem kveðið er á um í alþjóðasamningum sem öðlast hafa stjórnskipulegt gildi að því er Ísland varðar. Eftirtaldir skulu einnig njóta friðhelgi og forréttinda samkvæmt samningum þessum hér á landi: 1. starfslið alþjóðastofnana, 2. þeir sem koma fram eða starfa á vegum alþjóðastofnana, 3. fulltrúar, sendimenn og erindrekar aðila að alþjóðastofnunum, 4. þeir sem taka þátt í rekstri mála fyrir alþjóðastofnunum og 5. fjölskyldur þeirra sem getið er í 1.–4. tölul. [Eftirlitsmenn og aðrir aðilar sem starfa á grundvelli alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að skulu njóta friðhelgi og forréttinda hér á landi í samræmi við viðkomandi alþjóðasamning.] L. 67/2023, 29. gr. [1. gr. a. Laun og launatengdar greiðslur embættismanna og starfsmanna stofnana Evrópusambandsins njóta skattfrelsis hér á landi, þ.m.t. eftirlaun og greiðslur til eftirlifandi maka og barna.] L. 80/2022, 261. gr.

2. gr.

2. gr. [Ráðherra] setur nánari reglur um framkvæmd laga þessara. L. 126/2011, 171. gr.

3. gr.

3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.