Lagasafn

Lög um byggingarsjóð Listasafns Íslands

nr. 41/19592 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Stofna skal byggingarsjóð Listasafns Íslands. Stofnfé sjóðsins er það fé, sem Alþingi hefur lagt fram til að byggja vinnusal og íbúð fyrir Jóhannes Sveinsson Kjarval, listmálara.

2. gr.

2. gr. Þangað til bygging húss fyrir Listasafn Íslands hefst, skal sjóðurinn varðveittur og ávaxtaður í Landsbanka Íslands. [Ráðuneytið] birtir árlega í Stjórnartíðindum eða Lögbirtingablaði endurskoðaðan ársreikning sjóðsins. L. 126/2011, 30. gr.