Lagasafn

Lög um bókasafnsfræðinga

nr. 97/19846 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Rétt til að kalla sig [bókasafns- og upplýsingafræðing] og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem til þess hefur leyfi [ráðherra]. L. 21/2001, 1. gr. L. 126/2011, 104. gr.

2. gr.

2. gr. Leyfi samkvæmt 1. gr. má aðeins veita: 1. [þeim sem lokið hafa BA-prófi frá Háskóla Íslands með bókasafns- og upplýsingafræði sem aðalgrein er jafngildir a.m.k. 60 námseiningum]; 2. þeim sem tekið hafa lokapróf frá háskóla og a.m.k. 60 einingar í [bókasafns- og upplýsingafræði] við Háskóla Íslands; 3. þeim sem lokið hafa hliðstæðu prófi erlendis sé námið viðurkennt sem slíkt af yfirvöldum þess lands þar sem námið er stundað; 4. [þeim sem tekið hafa lokapróf frá háskóla og framhaldsgráðu í bókasafns- og upplýsingafræði til viðbótar, þ.e. MA, MLS eða sambærilega háskólagráðu]. [Áður en leyfi er veitt skv. 3. og 4. lið skal leita umsagnar Upplýsingar – félags bókasafns- og upplýsingafræða, Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga og bókasafns- og upplýsingafræðiskorar við félagsvísindadeild Háskóla Íslands.] L. 21/2001, 2. gr.

3. gr.

3. gr. [Bókasafns- og upplýsingafræðingi] ber að starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um bókasöfn sem í gildi eru á hverjum tíma. L. 21/2001, 3. gr.

4. gr.

4. gr. Brot á lögum þessum varða sektum. … L. 88/2008, 233. gr.

5. gr.

5. gr. [Ráðherra] getur sett nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd laga þessara. L. 126/2011, 104. gr.

6. gr.

6. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.