Lagasafn

Lög um bann við fjárhagslegum stuðningi erlendra aðila við íslenska stjórnmálaflokka og blaðaútgáfu erlendra sendiráða á Íslandi

nr. 62/19785 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. … Þá er erlendum sendiráðum á Íslandi óheimilt að kosta eða styrkja blaðaútgáfu í landinu. L. 162/2006, 13. gr.

2. gr.

2. gr. Lög þessi taka til stjórnmálaflokka og félagasamtaka þeirra, svo og til hvers konar stofnana, sem starfa á þeirra vegum, beint eða óbeint, þ. á m. blaða, og einnig til blaða og tímarita, sem út eru gefin á vegum einstaklinga eða félagasamtaka.

3. gr.

3. gr. Bann það, sem felst í 1. gr. þessara laga, nær til hvers konar stuðnings, sem metinn verður til fjár, þ. á m. til greiðslu launa starfsmanna eða gjafa í formi vörusendinga.

4. gr.

4. gr. Erlendir aðilar teljast í lögum þessum sérhverjar stofnanir eða einstaklingar, sem hafa erlent ríkisfang, hvort sem þeir eru búsettir hér á landi eða ekki.

5. gr.

5. gr. Brot gegn lögum þessum varða sektum … Fjármagn, sem af hendi er látið í trássi við lög þessi, skal gert upptækt og rennur til ríkissjóðs. L. 10/1983, 74. gr.