Lagasafn

Lög um ættleiðingarstyrki

nr. 152/200610 greinar

Texti laganna

1. gr.Gildissvið.

1. gr. Gildissvið. Lög þessi taka til fjárstyrkja úr ríkissjóði til kjörforeldra sem ættleitt hafa erlent barn eða börn í samræmi við lög um ættleiðingar. Lög þessi taka ekki til alþjóðlegra fjölskylduættleiðinga. II. kafli. Stjórnsýsla.

2. gr.Yfirstjórn.

2. gr. Yfirstjórn. [Ráðherra] fer með yfirstjórn ættleiðingarstyrkja samkvæmt lögum þessum. L. 126/2011, 442. gr.

3. gr.Framkvæmdaraðili.

3. gr. Framkvæmdaraðili. [Ráðherra] ákveður með reglugerð hvaða aðila hann felur framkvæmd laga þessara. Kostnaður vegna ættleiðingarstyrkja í lögum þessum greiðist úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum hverju sinni. L. 162/2010, 34. gr.

4. gr.Kæruheimild.

4. gr. Kæruheimild. Ákvörðun um synjun ættleiðingarstyrks og leiðréttingu á greiðslum skv. 8. gr. er heimilt að kæra til [ráðherra]. Um kæru gilda ákvæði VII. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. L. 162/2010, 34. gr. III. kafli. Greiðsla ættleiðingarstyrks.

5. gr.Greiðsla og skilyrði styrks.

5. gr. Greiðsla og skilyrði styrks. Ættleiðingarstyrkur er eingreiðsla sem er greidd út samkvæmt umsókn kjörforeldra þegar erlend ættleiðing hefur verið staðfest hér á landi eða ættleiðingarleyfi hefur verið gefið út hér í samræmi við ákvæði laga um ættleiðingar. Kjörforeldrar sem hafa fengið útgefið forsamþykki í samræmi við lög um ættleiðingar eiga einir rétt á ættleiðingarstyrk. Þessi réttur er ekki framseljanlegur.

6. gr.Umsókn um styrk.

6. gr. Umsókn um styrk. Kjörforeldrar skulu sækja um ættleiðingarstyrk á þar til gerðum eyðublöðum. Sækja skal um styrk innan sex mánaða frá því að erlend ættleiðing er staðfest hér á landi eða ættleiðingarleyfi gefið út hér í samræmi við lög um ættleiðingar. Réttur til ættleiðingarstyrks fellur niður að þessum tíma liðnum. Ákveða skal með reglugerð sem [ráðherra] setur hvaða gögn skuli fylgja með umsókn um ættleiðingarstyrk. L. 162/2010, 34. gr.

7. gr.Fjárhæð styrks.

7. gr. Fjárhæð styrks. Fjárhæð ættleiðingarstyrks nemur 480.000 kr. Fjárhæð styrksins skal endurskoðuð í tengslum við afgreiðslu fjárlaga á tveggja ára fresti. [Ráðherra] setur í reglugerð ákvæði um endurskoðaða fjárhæð styrksins. Ef kjörforeldrar hafa ættleitt fleiri en eitt barn samtímis er veittur styrkur vegna hvers barns umfram eitt sem nemur 20% af fjárhæð skv. 1. mgr. L. 162/2010, 34. gr. Rg. 950/2007, sbr. 1198/2008 og 1467/2023.

8. gr.Leiðrétting á greiðslum.

8. gr. Leiðrétting á greiðslum. Hafi styrkþegi ranglega fengið ættleiðingarstyrk skal hann endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var. IV. kafli. Ýmis ákvæði.

9. gr.Reglugerð.

9. gr. Reglugerð. [Ráðherra] setur reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara. L. 162/2010, 34. gr. Rg. 950/2007, sbr. 1198/2008.

10. gr.Gildistaka.

10. gr. Gildistaka. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2007. Rétt til styrks samkvæmt lögum þessum eiga kjörforeldrar barna sem ættleidd eru eftir gildistöku laganna.