Lagasafn

Lög um aðild Íslands að samningi um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðaustur-Atlantshafi

nr. 68/19814 greinar

Texti laganna

1. gr.

1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að fullgilda fyrir Íslands hönd samning frá 18. nóvember 1980 um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðaustur-Atlantshafi. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með lögum þessum.

2. gr.

2. gr. [Ráðherra] er heimilt að setja reglur um framkvæmd samningsins. L. 126/2011, 93. gr. Rg. 263/1970 (um alþjóðlegt fiskveiðieftirlit utan landhelgi og fiskveiðilögsögu). Augl. 222/1971 (um bann við síldveiði með herpinót á svæði í hafinu suður af Írlandi og vestur af Englandi). Rg. 181/1976 (um takmörkun á síldveiðum íslenskra skipa í Norðursjó, Skagerak og á svæði VI (a) vestan Skotlands).

3. gr.

3. gr. Brot á reglum sem settar verða samkvæmt 2. gr. laga þessara skulu varða sektum 2000–40.000 gullkrónum, sbr. lög4 11. apríl 1924. Ennfremur er heimilt að gera afla og veiðarfæri upptæk. Auk þess má láta brot varða skipstjóra fangelsi allt að 6 mánuðum þegar sakir eru miklar eða þegar um ítrekað brot er að ræða. [Kyrrsetja skal] skip, sem staðið er að meintum ólöglegum veiðum, þegar er það kemur til hafnar, og er eigi heimilt að láta það laust fyrr en dómur hefur verið kveðinn upp í máli ákæruvaldsins gegn skipstjóra skipsins eða máli hans lokið á annan hátt og sekt og kostnaður greiddur að fullu. Þó er heimilt að láta skip laust fyrr ef sett er bankatrygging, eða önnur trygging jafngild að mati dómara, fyrir greiðslu sektarinnar og málskostnaðar. Til tryggingar greiðslu sektar samkvæmt þessari grein og kostnaðar skal vera lögveð í skipinu. … L. 19/1991, 195. gr. L. 88/2008, 233. gr.

4. gr.

4. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. … Fylgiskjal. Samningur um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðaustur-Atlantshafi. Sjá Lagasafn 1995, bls. 950–953.