1. gr.
Bönnuð er öll keppni eða sýning á hnefaleik. Enn fremur er bannað að kenna hnefaleik.
2. gr.
2. gr.
Bönnuð er sala og notkun hnefaleiksglófa og annarra tækja, sem ætluð eru til þjálfunar hnefaleikara. Í reglugerð skal ákveða, hvernig fara skuli með slík tæki, sem nú eru til í landinu.
3. gr.
3. gr.
Brot gegn lögum þessum og reglugerð, settri samkvæmt þeim, skal varða sektum … ef ekki liggur þyngri refsing við brotinu samkvæmt öðrum lögum.
L. 116/1990, 27. gr.